Innlent

Bílbeltin björguðu

Kúagerði
Kúagerði Mynd/Vilhelm
Þrjár stúlkur sluppu með minniháttar meiðsl þegar að bifreið þeirra valt í Kúgerði á Vatnsleysiströnd rétt fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var í fyrstu talið að slysið væri alvarlegt og voru sjúkraflutningamenn sendir frá Reykjavík og Keflavík. Þegar komið var á staðinn kom í ljós að slysið var ekki alvarlegt en stúlkurnar þrjár voru þó fluttar til skoðunar á slysadeild. Varðstjóri hjá lögreglunni segir að stúlkurnar hafi allar verið í bílbelti og það hafi tvímælalaust bjargað þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×