Erlent

Mubarak svarar til saka

Hosni Mubarak
Hosni Mubarak mynd/afp
Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, var í morgun fluttur fyrir dómara þar sem ákærur gegn honum um spillingu og samsæri voru þingfestar.

Mubarak var fluttur í réttarsalinn í sjúkrarúmi og hafður í járnbúri á meðan honum voru kynntar ákærurnar en honum er meðal annars gefið að sök að hafa fyrirskipað öryggissveitum að drepa fólk sem tók þátt í mótmælunum sem urðu til þess að hann hrökklaðist frá völdum fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×