Erlent

Stór hákarl við Frönsku Rivieruna

Stór hákarl hefur sést á sveimi undan ströndum Frönsku Rivierunnar. Kafari í höfninni í Saint Tropez segir að hann hafi séð hákarlinn í tvígang og segir hann um 2ja metra langann.

Tug þúsundir manns eru nú staddir í frí á þessari vinsælu baðströnd, þar á meðal eru Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og hin ólétta eiginkona hans Carla Bruni.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hákarl sést við þessa strönd. Hluta hennar var lokað á sama tíma í fyrra eftir að stór hákarl sást þar. Árásir hákarla á fólk eru þó mjög sjaldgæfar á þessum slóðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×