Innlent

Handtekinn fyrir að ráðast á mann fyrir framan MR

Maðurinn dvelur nú í fangageymslum lögreglunnar á Hverfisgötunni.
Maðurinn dvelur nú í fangageymslum lögreglunnar á Hverfisgötunni.
Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn í kvöld eftir að hann sló annan mann niður fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra lögreglunnar er ekki vitað hver tildrög árásarinnar var.

Lögreglan kom á vettvang um klukkan sjö í kvöld og var gerandinn handtekinn og færður í fangageymslur lögreglunnar. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar.

Enn á eftir að yfirheyra gerandann og því enn á huldu hvað manninum gekk til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×