Innlent

Aldrei fleiri erlendir hlauparar

Mynd úr safni
Um 1.300 erlendir hlauparar taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár og hafa aldrei verið fleiri. Hlaupararnir eru víðsvegar að úr heiminum, m.a. frá Austur Tímor, Argentínu, Taiwan, Filippseyjum, Venesúela, Haíti, Jamaica og Laos. Flestir erlendir hlauparar koma frá Bandaríkjunum eða 373, 233 koma frá Kanada, 149 frá Þýskalandi og 119 frá Bretlandi

Met slegið í forskráningu

Tæplega 10.000 hlauparar voru skráðir þegar forskráningu lauk á miðvikudag. Þetta er um 30% aukning milli ára. Búast má við að skráningartölur hækki töluvert eftir daginn í dag. Tæplega fimmtíu prósent aukning er í skráningum í hálfmaraþon þar sem tæplega 2.000 hlauparar hafa skráð sig. Þá eru um 700 hlauparar skráðir í heilt maraþon. Þá hefur áheitasöfnun gengið vonum framar og hafa nú safnast tæpar 29 milljónir króna til góðra málefna.

Skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fer nú fram í Laugardalshöllinni. Þeir sem ekki skráðu sig á netinu geta gert það í höllinni í dag til klukkan 19:00 í kvöld. Allir skráðir hlauparar verða að sækja skráningargögn sín á hátíðina og eru þeir beðnir um að framvísa kvittun eða hlaupanúmerinu sínu. Fólk er þegar farið að streyma í Laugardalshöllina þar sem er mikil dagskrá í dag. Öllum hlaupurum er boðið í pastaveislu auk þess sem ýmsir fyrirlestrar eru í boði og kynningar á heilsutengdum vörum og starfsemi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×