Innlent

Bara glampi í fjallinu

Mynd úr safni
Björgunarsveitir voru kallaðar út á Selfossi eftir að lögreglu höfðu borist tvær tilkynningar um að maður væri tallinn í sjálfheldu í Ingólfsfjalli. Fólk hafði séð glampa í fjallinu og taldi að maðurinn væri með þessum hætti að reyna að gera vart við sig.

Þegar betur var að gáð kom í ljós að enginn maður var þarna á ferð. Ekki er vitað á hvað glampaði. Samkvæmt lögreglunni hefur björgunarsveitin áður fengið tilkynningar vegna glampa sem talinn er hafa komið frá fólki en enginn hafi verið á ferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×