Innlent

Bassaleikari REM tók lagið á Obladi Oblada

Mike Mills bassaleikari hljómsveitarinnar REM tók lagið með Bítladrengjunum á hefðbundnum tónleikum þeirra á Obladi Oblada við Frakkastíg í gærkvöldi.

Mills var leynigestur kvöldsins, kom upp á sviðið og spilaði með Bítladrengjunum lögin Get Back og Revolution við góðar undirtektir þeirra sem voru á staðnum.

Mike Mills hefur verið á ferð um Ísland í vikunni ásamt kærustu sinni Holly. Þau eru mjög ánægð með dvölina og bera landi og þjóð góða sögu en þau halda aftur heim í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×