Innlent

Tíu ölvaðir og sjö dópaðir teknir undir stýri um helgina

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina og sjö voru teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Átta þeirra ölvuðu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði og Mosfellsbæ að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. „Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru átta karlar á aldrinum 20-63 ára og tvær konur, 21 og 31 árs. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi,“ segir í tilkynningu.

Af þeim sem óku undir áhrifum fíkniefna voru sex stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ. „Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-39 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×