Innlent

Mótorhjólamenn keyrðu utan vegar við Skógafoss

Óheimilt er með öllu að aka inn að Skógafossi.
Óheimilt er með öllu að aka inn að Skógafossi. Mynd/Pjetur
Lögreglan á Hvolsvelli rannsakar nú utanvegaakstur bifhjóla við Skógafoss um helgina. Lögreglu barst tilkynning um að hópur vélhjólamanna hefði ekið inn á friðað svæðið við Skógafoss, en hópurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Vitni munu hafa verið að akstrinum og náðust skráningarnúmer hjólanna. Málið er í rannsókn. Óheimilt er með öllu að aka inn að Skógafossi, heldur ber að leggja ökutækjum við bifreiðastæði við tjaldsvæðið á Skógum og ganga að fossinum að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×