Innlent

Harpa lýst upp í fyrsta sinn

Margir fylgdust með þegar ljós ó Glerhjúp Hörpu voru tendruð í fyrsta sinn.
Margir fylgdust með þegar ljós ó Glerhjúp Hörpu voru tendruð í fyrsta sinn. Mynd/Egill
Tendrað var á glerhjúp Hörpu laust fyrir klukkan ellefu í gær. Nokkrar ljósaperur blikkuðu um alla bygginguna og á framhlið hennar, sem snýr að Arnarhóli, voru nokkrar rúður lýstar með litum. Hin mikla ljósadýrð fékk þó heldur blendin viðbrögð ef marka má umræðu á netinu og samtöl þeirra sem stóðu og fylgdust með í gær.

Byggingin var formlega vígð í gær og var ljósadýrðin nokkurs konar lokahnykkur á opnun hennar, en í vor voru þar haldnir opnunartónleikar og heil opnunarhelgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×