Innlent

Tvær líkamsárásir á Selfossi

Tveir karlmenn gista fangaklefa á Selfossi eftir nóttina, báðir vegna líkamsárásar en annar auk þess vegna fíkniefnamisferlis. Mennirnir verða yfirheyrðir í dag.

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn eftir að til ryskinga kom í sumarbústað í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, en hann var þar staddur ásamt vinnufélögum sínum. Til handalögmála kom milli mannsins og félaga hans, og hlaut sá síðarnefndi stóran skurð á höfði. Sá slasaði var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans.

Seinna atvikið átti sér stað í heimahúsi á Selfossi. Tvítugur karlmaður var handtekinn í kjölfar átaka á heimilinu, þar sem félagar höfðu setið að sumbli. Við handtökuna fundust einnig fíkniefni á manninum.

Báðir sitja mennirnir nú fangageymslur en þeir verða yfirheyrðir seinna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×