Sáttatillaga starfsmanna Kvikmyndaskólans 31. ágúst 2011 22:06 Starfsmenn leggja m.a. til að tækjabúnaður skólans standi fólki til boða án endurgjalds yfir sumartímann.
Starfsmenn Kvikmyndaskóla Íslands sendu í kvöld frá sér sáttatillögu. Meðal annars er lagt til að skólinn lækki beiðni sína um árlega fjárveitingu frá ríkinu, að skólagjöld verði hækkuð og nemendum og deildum fækkað. Sáttartillagan ber yfirskriftina Vinnum Saman. Starfsmennirnir segja helstu þolendur núverandi aðstæðna vera nemendur skólans. Skólann sjálfan segja þeir verðmætan íslenskri þjóð til framtíðar. Því biðja þeir stjórn KVÍ og menntamálaráðuneytið að taka tillöguna til rækilegrar skoðunar. Til er lagt að KVÍ lækki beiðni sína um fjárveitingu niður í 63 milljónir á ári með aukafjárveitingu fyrir árið 2011 uppá 42,5 milljónir. Upphaflega beiðnin var 70 milljóna króna ársframlag og 55 milljóna aukafjárveiting. Ríkið var tilbúið að greiða 56 milljónir árlega og 30 milljónir aukalega í ár. Skólagjöld mega hækka úr 2,4 milljónum og upp í 2,6 milljónir, eða um 7,7% samkvæmt tillögunum. Starfsmenn skólans leggja og til að hluti skólans verði gefinn nemendum, ríki og fagfélögum. Eignarhaldið myndi þá skiptast svo að núverandi rekstrarfélag héldi 51% skólans, nemendur fengju 13%, fagfélög tengd kvikmyndagerð fengju 20% og íslenska ríkið afganginn, eða 16%. Loks leggja starfsmennirnir til að aðstaða og tækjabúnaður skólans standi fólki til boða yfir sumartímann endurgjaldslaust. Það yrði atvinnuskapandi fyrir nemendur. Til dæmis mætti nýta búnaðinn til að framleiða margmiðlunarefni fyrir Námsgagnastofnun eða vinna með forvarnarfélögu eins og jafningjafræðslunni. Íslensk stjórnvöld hafa hrint af stað átakinu „Nám er vinnandi vegur" þar sem markmiðið er að skapa 1000 ný námstækifæri fyrir fólk að 25 ára aldri. Áætlaður kostnaður af því er 7 milljarðar króna. Starfsmenn Kvikmyndaskólans segja skólann geta staðið undir 15% af þeim námstækifærum. „Þær þjóðir, sem lengst hafa náð í hagsæld og velferð, hafa varið hvað mestum fjármunum til menntunar. Í menntun felast ómetanleg verðmæti," segir í lokum sáttartilboðsins.
Mest lesið Gæti orðið ófært í Þórsmörk Innlent Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Innlent Halla verði að upplýsa um bílakaupin Innlent Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Innlent Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Innlent Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Innlent „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Innlent Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Innlent Fleiri fréttir Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Jökulhlaup, deilur um grunnskólamál og sundkappi Vegagerðin og deilur um menntakerfið Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum „Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“ „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Sjá meira