Innlent

Eldur í bifreið eftir bílveltu

Fólksbíll valt í Norðurárdal rétt fyrir klukkan sex í morgun. Slysið varð skammt frá bænum Hvammi en ökumaðurinn, sem er karlmaður, var einn í bílnum en hann er ekki talinn vera alvarlega slasaður.

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni í Borgarnesi kom eldur upp í bílnum og er hann ónýtur. Maðurinn komst sjálfur út úr bílnum og stuttu síðar kom vegfarandi að slysstað og hringdi á lögreglu.

Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala til skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×