Innlent

Þörf á unglingafangelsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mikið álag er á Stuðlum og oft eru öll pláss þar full.
Mikið álag er á Stuðlum og oft eru öll pláss þar full.
Ný stofnun þar sem hægt væri að vista fanga undir átján ára aldri er nauðsynleg til þess að hægt sé að lögfesta Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Slík stofnun er meðal þeirra úrræða sem Barnaverndarstofa bendir á að greinagerð til velferðarráðuneytisins um úrbætur í barnaverndarmálum. Greinargerðinni var dreift á Alþingi í gær. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að tvær tillögur felist í greinagerðinni. Sú fyrri miði að því að hægt verði að lögfesta Barnasáttmálann.

„Þá þarf það að gerast að menn þurfa að vera með tiltækt úrræði fyrir unga afbrotamenn sem hlotið hafa óskilorðsbundna dóma," segir Bragi. Sú tillaga gangi út á að það verði komið á fót nýju meðferðarheimili sem verði með stigskipta þjónustu þar sem verði lokuð eining og opin eining. Þarna verði jafnframt megináhersla lögð á vímuefnameðferð og möguleikar á að vista þá einstaklinga sem hlotið hafa dóma og/eða úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Bragi segir að nú sé þegar fyrir hendi samningur milli Barnaverndarstofu og Fangelsismálastofnunar þar sem boðið er upp á þessa úrlausn en hún sé algerlega háð því að einstaklingurinn vilji meðferð og sé tilbúinn til þess að taka þátt í henni. „En ef af þessari lagabreytingu verður þurfum við að vera í stakk búin til þess að taka við öllum, alveg óháð því hvort þeir eru viljugir til þess að taka þátt í meðferðinni," segir Bragi. Hann segir að það sé fámennur hópur sem þurfi þessa þjónustu. Um sé að ræða um fimm til tíu einstaklinga á hverjum tíma að jafnaði.

Mikið álag á Stuðlum

Nú þegar er rekið meðferðarheimilið Stuðlar, að Fossaleyni í Reykjavík, en þar afplána unglingar ekki fangelsisdóma. Mikið álag er á Stuðlum og jafnan biðlistar. Tölfræði Barnaverndarstofu bendir til þess að þeir sem endi á neyðarvistun Stuðla séu í mörgum tilvikum unglingar sem hafi verið áður í meðferð á Stuðlum eða öðrum meðferðarheimilum en hafi ekki náð að fóta sig eftir meðferð. Þess vegna leggur Barnaverndarstofa líka til að núverandi kerfi verði styrkt frekar þannig að hægt verði að ná betur utan um þann hóp sem hefur lokið meðferð um það leyti sem unglingarnir útskrifast og eftir að þeir útskrifast. Til dæmis sé mikilvægt að virkja þessa krakka í námi eða vinnu, svo sem í Fjölsmiðjunni. Því leggur Barnaverndarstofa til þess að gerður verði samningur við Fjölsmiðjuna þannig að hún verði efld. Með þessu verði meðferð á Stuðlum skilvirkari og endurkomum gæti fækkað.

Dýr hugmynd

Bragi segir að hugmyndin hér að ofan, um nýja stofnun þar sem hægt sé að vista fanga undir lögaldri, sé kostnaðarsöm. Seinni hugmyndinni sé hins vegar ódýrari og hana ætti að vera hægt að framkvæma án mikillar fyrirhafnar. Bragi leggur jafnframt áherslu á að þrátt fyrir ofangreinda hugmynd sé Barnaverndarstofa ekki að leggja til að farið verði í mikla stofnanauppbyggingu í meðferðarstarfi heldur verði lögð áhersla á meðferðarstarf utan stofnana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×