Innlent

Halda minningartónleika um Sissu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigrún Mjöll Jóhannesdóttir lést í fyrra vegna lyfjaneyslu.
Sigrún Mjöll Jóhannesdóttir lést í fyrra vegna lyfjaneyslu.
Minningartónleikar um Sigrúnu Mjöll Jóhannesdóttur verða haldnir í Hofi, menningarhúsinu á Akureyri, föstudaginn 30. september næstkomandi. Það eru stelpur á Meðferðarheimilinu á Laugalandi sem fengu þá hugmynd á vordögum að halda tónleika til þess að styrkja minningarsjóð Sissu, eins og hún var jafnan kölluð, en hún var í meðferð þar. Sissa lést í júní í fyrra eftir of stóran skammt af læknadópi aðeins 17 ára gömul.

Við andlát Sissu var stofnaður minningarsjóður sem hefur það hlutverk að stuðla að skapandi störfum ungmenna sem lent hafa út af sporinu og eru á meðferðarheimilum landsins. Úthlutað er úr sjóðnum 22.desember, en það er afmælisdagur Sigrúnar Mjallar.

Á tónleikunum, sem fram fara í Hofi, menningarhúsinu á Akureyri klukkan átta á föstudagskvöldinu, koma fram margir af vinsælustu tónlistarmönnum landsins í dag. Efnisskráin verður fjölbreytt enda eru tónleikarnir hugsaðir sem fjölskyldutónleikar.



Þessir koma fram á tónleikunum:

Óskar Pétursson, Eyþór Ingi Jónsson, Friðrik Dór, Rúnar Eff, Kristmundur Axel, Bjartur Elí, Júlí Heiðar, Kór Glerárkirkju, Karlakór Akureyrar- Geysir, Hvanndalsbræður, Bent, Steindi jr. og Páll Óskar.

Kynnir: Þórunn Antonía.

Miðasala hófst í dag klukkan eitt.

Hægt er að kaupa miða á www.minningsissu.is og einnig á www.midi.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×