Innlent

Beit lögreglukonu í gegnum hanskann

mynd úr safni
Lögreglukona var bitin í höndina þegar hún var að setja konu í fangaklefa á Hverfisgötu nú undir morgun. Konan brást illa við handtökunni og beit frá sér, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra.

Lögreglukonan þurfti að leita sér aðstoðar á slysadeild. Hún var með hanska til þess að minnka líkurnar á smiti en konan beit í gegnum hann.

Tveir voru látnir sofa úr sér í fangaklefa í nótt. Þá var haldið fjölmennt busaball á Broadway í gærkvöldi og tekur lögregla fram þar hafi allt gengið eins og best verði á kosið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×