Fótbolti

Ætlaði Rosenborg líka að taka þátt í leikritinu um Veigar Pál?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Veigar Páll hefur verið mikið í umræðunni í Noregi síðustu daga og vikurnar.
Veigar Páll hefur verið mikið í umræðunni í Noregi síðustu daga og vikurnar. Mynd/Vilhelm
Norskir fjölmiðlar halda áfram að fjalla um félagaskipti Veigars Páls Gunnarssonar frá Stabæk til Vålerenga en málið hefur vakið gríðarlega mikla athygli þar í landi og þótt víðar væri leitað.

Ekki er útilokað að lögreglan framkvæmi eigin rannsókn og að hausar verið látnir fjúka vegna þeirra vafasömu viðskipta sem áttu sér stað í kringum félagaskiptin. Veigar Páll er þó sjálfur saklaus aðili í málinu.

Eins og ítarlega hefur verið fjallað um greiddi Vålerenga eina milljón norskra króna fyrir Veigar en með í kaupunum fylgdi kaupréttur á fimmtán ára gömlum leikmanni sem var metinn á fjórar milljónir króna.

Stabæk hafði keypt Veigar Pál frá franska liðinu Nancy en í þeim kaupum fylgdu þeir skilmálar að ef Veigar Páll yrði seldur á samningstímanum, fengi Nancy helming kaupverðsins til sín. Með því að selja Veigar Pál á eina milljón norskra króna en ekki fimm endaði Stabæk með því að greiða Nancy hálfa milljón króna - ekki tvær og hálfa.

Í fréttum TV 2 í Noregi í kvöld var svo greint frá því að Rosenborg, sem var sagt reiðubúið að borga 3-4 milljónir króna fyrir Veigar Pál á sínum tíma, hafi sent svipað tilboð til Stabæk. Það hljómaði upp á eina milljón fyrir Veigar Pál og svo 4,25 milljónir fyrir leikmann að nafni Johan Andersson. Samningur þess síðarnefnda við Stabæk rennur út í sumar.

Norska knattspyrnusambandið sektaði Stabæk um 500 þúsund norskar krónur vegna málsins og Vålerenga um 350 þúsund. Þá voru tveir forráðamenn Stabæk settir í bann í átján mánuði og einn hjá Vålerenga í tólf mánuði.


Tengdar fréttir

Salan á Veigari Páli gæti endað sem lögreglurannsókn

Sagan endalausa um vistaskipti Veigars Páls Gunnarssonar frá Stabæk til Vålerenga í norska fótboltanum ætlar engan endi að taka. Félögin þurfa að greiða háa sekt og þrír háttsettir aðilar fá ekki að koma nálægt fótbolta í 12-18 mánuði - og nú hefur norska lögreglan áhuga á að rannsaka málið.

Stabæk sveik líka Stjörnuna og KR um milljónir í sölunni á Veigari

Svindl Stabæk-manna í sölu félagsins á Veigari Páli Gunnarssyni til Vålerenga á dögunum mun ekki aðeins koma niður á franska félaginu Nancy því íslensk félög hafa einnig misst af milljónum vegna þessa. Stjarnan og KR eru meðal þeirra félaga sem Stabæk hefur svikið um háar fjárhæðir. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

Stabæk og Vålerenga fengu háar sektir vegna Veigars

Norska knattspyrnusambandið tók skandalinn í kringum söluna á Veigari Páli Gunnarssyni engum vettlingatökum í dag. Stabæk og Vålerenga voru nefnilega sektuð um samtals 18 milljónir íslenskra króna.

Stabæk sveik Nancy um 41 milljón í sölunni á Veigari Páli

Norska sjónvarpsstöðin TV 2 greindi frá því í kvöld að Stabæk hafi svikið franska liðið Nancy um tvær milljónir norskra króna (41 milljón íslenskra króna) þegar félagið seldi íslenska framherjann Veigar Pál Gunnarsson til Vålerenga á dögunum.

Tínum ekki 2-3 milljónir upp af götunni

Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, segir mikla fjármuni í húfi fyrir félagið í tengslum við sölu Veigars Páls Gunnarssonar frá Stabæk til Vålerenga fyrr á þessu ári. Til greina komi að fara með málið í gegnum Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA.

Salan á Veigari á borð lögreglu

Sagan endalausa um vistaskipti Veigars Páls Gunnarssonar frá Stabæk til Vålerenga í norska fótboltanum ætlar engan endi að taka. Félögin þurfa að greiða háa sekt og þrír háttsettir aðilar fá ekki að koma nálægt fótbolta í 12-18 mánuði – og nú hefur norska lögreglan áhuga á að rannsaka málið.

Sleppur Veigar Páll við keppnisbann?

Norskir fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um umdeild atriði varðandi vistaskipti Veigars Páls Gunnarssonar í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Stabæk seldi sem kunnugt er Veigar Pál til Vålerenga í Osló og vakti það athygli hvernig staðið var að þeim viðskiptum. Á morgun mun norska knattspyrnusambandið taka ákvörðun um hvort ákæra verði lögð fram í málinu.

Veigar Páll gæti fengið keppnisbann og krefst svara frá Stabæk

Veigar Páll Gunnarsson hefur verið mikið í fréttum í Noregi að undanförnu eftir að sjónvarpsstöðin TV2 greindi frá vafasömum atriðum sem upp komu vegna félagaskipta Veigars frá Stabæk til Vålerenga. Veigar segir í viðtali við NRK að hann hafi ekki orðið var við að Stabæk hafi reynt að fela eitthvað í þeim viðskiptum. Norska knattspyrnusambandið mun rannsaka málið og gætu Stabæk, Vålerenga og Veigar Páll fengið harða refsingu sem fæli í sér keppnisbann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×