Vilja að Strætó gangi fram yfir miðnætti alla daga 1. desember 2011 15:03
Síðastliðinn mánuð voru settar inn rúmlega 300 hugmyndir á samráðsvettvanginn Betri Reykjavík. Hugmyndirnar miða að því að bæta þjónustu við borgarbúa og á meðal þeirra tillagna sem fengu mestan stuðning síðastliðinn mánuð var sú að Strætó verði látinn ganga fram yfir miðnætti alla daga. Sú hugmynd hefur nú verið send til umhverfis- og samgönguráðs til umfjöllunar. Hugmynd um að endurvekja skólagarðana með þeim rökum að nýta megi uppskeru þeirra í skólamötuneytum borgarinnar, hefur jafnframt verið send til umhverfis- og samgönguráðs. „Önnur skyld hugmynd, að gera áætlun um að bæta næringu nemenda skólanna, hefur verið send skóla- og frístundaráði. Þær hugmyndir sem mest vægi fá á Betri Reykjavík eru mánaðarlega teknar til umfjöllunar í fagráðum borgarinnar. Að þessu sinni voru þær 14 alls,“ segir á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Á heimasíðunni segir að um 25.000 manns hafi heimsótt vefinn og eru skráðir notendur nú yfir 2.600. „Einungis skráðir notendur geta unnið á vefnum, sett inn hugmyndir, stutt hugmyndir eða hafnað þeim og skrifað rök með eða á móti hugmyndum.“ „Reykjavíkurborg hvetur alla Reykvíkinga til að kynna sér Betri Reykjavík og taka þátt á vefnum enda er þar kominn vettvangur fyrir borgarana til að kynna sér málefni borgarinnar og hafa áhrif á þau,“ segir einnig.
Mest lesið Öfga vinstri brjálæðingurinn Lygna-Kamala Erlent Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Innlent Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Innlent Lögreglumaður traðkaði á höfði manns Erlent „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Innlent Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf Innlent Segir persónulegan metnað ekki mega standa í vegi fyrir lýðræðinu Erlent Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Innlent Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Innlent Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf Innlent Fleiri fréttir Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Öllu gríni fylgi alvara Um 100 manns frá Eþíópíu búa á Íslandi Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Hættustig almannavarna og sögulegt ávarp Netanjahú Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Reiðhjólamaður féll af kletti við Jökulsárgljúfur Færa börnin eftir að skemmdir í leikskólanum komu í ljós Þórarinn selur ekki sinn hlut í Búsæld Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Halla heimsótti Guðna Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Lýsa yfir hættustigi Söngskólinn í Reykjavík leitar nýs húsnæðis Viðvarandi vætutíð og áfram rigning í kortunum „Auðvitað mjög margir sem eru óttaslegnir“ Arnar Þór íhugar að stofna stjórnmálaflokk Verðbólga eykst og áfram rigning í kortunum Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Erfðabreytileikar hafa áhrif á DNA metýleringu Segir tímabært að Ísland stokki spilin upp á nýtt Leiðindi í lyfjaverslun og æsingur í miðborginni Sjá meira