Innlent

Sjálfsmyndin umturnaðist vegna breytinga á stjörnumerkjum

Karen D. Kjartansdóttir skrifar
Gunnlaugur Guðmundsson er einn helsti stjörnuspekingur Íslands.
Gunnlaugur Guðmundsson er einn helsti stjörnuspekingur Íslands.
Sjálfsmynd margra umturnaðist algjörlega þegar stjörnuspekingur tilkynnti um daginn á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC að stjörnumerkin hefðu færst úr stað.

Margir leggja drögin að nýjum degi, svona í gríni og alvöru, með því að líta yfir stjörnuspána í blöðunum. Og þetta fólk var heldur betur slegið út af laginu um daginn þegar heimspressan tilkynnti að stjörnumerkin hefðu breyst.

En síðan fréttin birtist hafa margir stjörnuspekingar um víða veröld stigið fram og sagt að málið sé ekki svona einfalt og það sama gerir Gunnlaugur Guðmundsson, helsti stjörnuspekingur Íslands.

„Það er rétt að fastastjörnumerkin þau hafa breyst en ekki stjörnumerkin sem stjönuspekin notar, það er dýrahringurinn sem tengist árstíðunum," segir Gunnlaugur og segir að í raun sé um tvo hringa að ræða. Það er hring fastastjörnumerkja og dýrahringinn sem stjórnist af árstíðum og stjörnuspekin byggi sín fræði á.

Hann segir fólk því áfram verða í sama merki og áður. Í hinum hringnum, það er hring fastastjörnumerkja, séu allt að 88 merki sem mörg hver séu svo fjarlæg að þau hafi engin áhrif á jarðarbúa. Í honum er naðurvaldurinn, þá er Óríon skammt og karlsvagninn og Stóra björn svo eitthvað sé nefnt.

„Tólf merki bera við sólarbrautina sem jörðin gengur í gegnum og það eru þau stjörnumerki sem við notum. Þau heita á ensku tropical zodiac eða árstíða dýrahringur og hann hefur ekkert breyst, hrúturinn byrjar alltaf á vorjafndægrum, krabbinn að sumarsólstöðum, vogin á haustjafndægrum og á vetrasólstöðum byrjar steingeitin og þannig er skiptingin og mun ekki breytast fyrr en vorjafndægur færast."

Hann segir að viðbrögð fólks um heiminn og mikla umfjöllun fjölmiðla um málið viðurkenningu fyrir stjörnuspekina. Fólk láti sem því sé ekkert gefið um stjörnumerki en vilji alls ekki færast um merki.



Stjörnufræðivefurinn segir stöðu nýju stjörnumerkjanna vera svona.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×