Íbúar Grímseyjar hafa orðið varir við öskufall í bænum. Þar er jörðin hvít eftir kalt veður undanfarna daga en að sögn heimamanns, sem fréttastofa ræddi við, liggur grá slikja yfir snjónum sem er augljóslega afleiðingar öskufalls.
Það er grátt í Grímsey.Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands þá má búast við talsverðu öskufalli allvíða suðaustanlands og einnig má gera ráð fyrir öskufalli austantil á Suðurlandi fram eftir degi.