Innlent

Almannavarnir lýsa yfir hættustigi

Hætturstigi hefur verið lýst yfir vegna hlaupsins í Múlahvísl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra en ákvörðunin var tekin í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli. Brúin yfir Múlahvísl er farin en hún var 128 metra löng byggð árið 1990.

„Fjallabaksleiðirnar voru opnaðar fyrir helgi og eru eingöngu færar jeppum og stærri bílum og er fólk hvatt til að fara frekar Fjallabaksleið nyrðri. Ástæða er til að vara fólk við mengun af völdum brennisteinsvetnis í grennd við ár frá Mýrdalsjökli. Brennisteinsvetni brennir slímhimnur í augum og lungum og lyktar eins og fúl egg," segir ennfremur. „Þegar styrkur brennisteinsvetnis er kominn yfir hættumörk, hættir fólk að finna lyktina af því."

Hvað merkir hættustig?

Á heimasíðu Almannavarna er hættustigi lýst svo:



Hættustig:

(Alert Phase)

Ef hættumat leiðir í ljós að hætta fer vaxandi verður að grípa til tafarlausra ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað neyðar- og öryggisþjónustunnar á viðkomandi svæði, ásamt því að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða s.s. rýmingar, brottflutnings eða lokunar svæða. Einnig eru leiðbeiningar og viðvaranir einkennandi fyrir þetta stig.

Um hættustig er að ræða:





  • Þegar hefja þarf eftirgrennslan eftir mönnum sem óttast er um.
  • Þegar tilraunir til að ná sambandi við skip, loftfar eða menn hafa ekki borið árangur.
  • Þegar upplýsingar hafa borist sem gefa til kynna að sjóhæfni skips sé takmörkuð, flughæfni loftfars skert og menn í vanda staddir, þó ekki svo alvarlegar að líkur séu á neyðarástandi.
  • Ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.
  • Ef auka þarf viðbúnað og sóttvarnarráðstafanir vegna yfirvofandi farsóttar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×