Segir tilgang friðlýsingar Gjástykkis að draga úr líkum á álveri 12. janúar 2011 11:26 Oddvitinn segir deilur um Gjástykki tengjast fyrirætlunum um álver á Bakka við Húsavík.
Oddviti sjálfstæðismanna í Norðurþingi segir tilgang ríkisstjórnarinnar með friðlýsingu Gjástykkis að minnka möguleika á byggingu álvers í Þingeyjarsýslum. Hann segir eðlilegt að sveitarfélögin taki við rannsóknarleyfinu af Landsvirkjun og láti hefja boranir strax í sumar. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar brugðust hart við í gær þegar fregnir bárust af því að Orkustofnun hefði endurnýjað rannsóknarleyfi Landsvirkjunar í Gjástykki. Umhverfisráðherra sagði þetta stóralvarlega ákvörðun og iðnaðarráðherra sagði ríkisstjórnina einhuga um að friðlýsa svæðið. Landsvirkjun gerði í umsókn sinni ráð fyrir því að hefja boranir á miðju sumri 2011, innan fárra mánaða, en síðdegis í gær lýsti forstjóri Landsvirkjunar því hins vegar yfir að ekkert yrði borað þar í sumar enda væri það yfirlýst stefna fyrirtækisins að vinna í sátt við stjórnvöld. Á Húsavík og nærsveitum setja menn málið í samhengi við átök um álver á Bakka. Jón Helgi Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Norðurþings, segir í grein á vefnum að það sé klárt að sveitarfélögin þrjú sem Gjástykki liggi í og landeigendur hafi ekki áhuga á friðlýsingu. Ef ríkisvaldið hyggist friðlýsa svæðið hljóti það að þurfa að leysa það til sín með öllum þeim kostnaði sem af því hljótist. Jón Helgi segir að allir sjái að tilgangur friðlýsingarinnar sé að minnka mögulegt framboð af orku frá háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum og minnka þannig möguleika á byggingu álvers í héraðinu. Hann segir að ef Landsvirkjun vilji ekki rannsaka svæðið sé eðlilegt að fyrirtækið skili leyfinu, sveitarfélögin taki við því og gangi í þær rannsóknir sem nauðsynlegar séu strax í sumar. Oddviti sjálfstæðismanna lýkur grein sinni á þeim orðum að það sé því miður að renna upp fyrir heimamönnum betur og betur að meðan núverandi ríkisstjórn sé við völd, með öll sín innanmein, muni ekkert gerast á hennar vegum sem leiða muni til uppbyggingar í kringum orkuiðnað í Þingeyjarsýslum.
Mest lesið Settu sprengjur í símboðana Erlent Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Erlent Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Innlent „Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“ Innlent Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum Erlent Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum Innlent Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Innlent Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Innlent 169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Erlent Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Erlent Fleiri fréttir Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum „Reglur samfélagsins mega ekki vera ómanneskjulegar“ „Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“ Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn þríklofinn um samgöngusáttmála Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Tók rúmlega ár að fá „nei“ við einfaldri fyrirspurn Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar Hvorki verið að fylgja fólki né fara með það heim Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Fresta leitinni að Illes Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Nafn stúlkunnar sem lést Til rannsóknar hvar stúlkan var myrt „Langveikt barn í hjólastól peð og fórnarlamb átaka við ríkisstjórnarborðið“ Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi Sigmundur segir fjölmenningastefnuna komna í þrot Brýnt að finna þyrluflugi nýjan samastað Bein útsending: Málþing um sjúklingaöryggi Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi „Ég hótaði ekki stjórnarslitum“ Vandræðalegt að fylgjast með svörum ráðherra Segir lögin skipta máli en líka mannúð „Þó að það hafi verið mér þvert um geð“ Brottvísun Yazans mótmælt á meðan ráðherrar funda Segir Vinstri græn hafa þröngvað Guðrúnu til lögbrots Sjá meira