Erlent

Varasamt að senda SMS - datt ofan í gosbrunn

Það getur verið vandasamt að senda SMS og ganga í leiðinni. Sérstaklega ef að stærðarinnar gosbrunnur verður á vegi þínum. Meðfylgjandi myndskeið gengur nú eins og eldur í sinu um netheima en þar sést ung kona fljúga á hausinn ofan í gosbrunn í verslunarmiðstöð.

Hún var að senda SMS og tók ekki eftir gosbrunninum. Til að gera málið enn vandræðalegra fyrir aumingja konuna þá fannst öryggisvörðunum í verslunarmiðstöðinni atvikið svo fyndið að þeir ákváðu að deila því með heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×