Erlent

Stofnar nýjan þingflokk

Ehud Barak
Ehud Barak

Ehud Barak, innan­ríkisráðherra Ísraels, hefur sagt sig úr Verkamannaflokknum og stofnað nýjan þingflokk. Barak verður áfram ráðherra, en búast má við því að Verkamannaflokkurinn segi sig úr stjórnarsamstarfi með Benjamin Netanjahú forsætisráðherra.

Verkamannaflokkurinn hefur verið eini hóf­semdarflokkurinn í ríkisstjórninni. Aðrir flokkar stjórnarinnar eru með sterkar trúarlegar eða þjóðernisáherslur og andvígir því að gefa eftir í mikilvægum málum í friðarviðræðum við Palestínumenn.

Friðarviðræður hafa legið niðri frá því seint í september, aðeins fáeinum vikum eftir að þær hófust, vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki viljað stöðva framkvæmdir ísraelskra landtökumanna á herteknu svæðunum. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×