Erlent

Enn flæðir í Ástralíu

Flóðin í Queensland ollu gríðarlegu tjóni og tugir fórust.
Flóðin í Queensland ollu gríðarlegu tjóni og tugir fórust.
Rigningarnar sem ollu hamförunum í Queensland ríki í Ástralíu á dögunum hafa nú færst sunnar og nú rignir eins og hellt sé úr fötu í Victoria ríki. Átta ára dreng er saknað frá því í gær þegar hann hreyfst með straumvatni og nokkrir bæir í ríkinu eru umluktir vatni. Um 3500 manns hafa yfirgefið heimili sín og rafmagnslaust er víða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×