Innlent

Íslenskur kjötiðnaðarnemi Danmerkurmeistari

Dagný nemur kjötiðn við verkmenntaskólann Arhus Tech í Árósum.
Dagný nemur kjötiðn við verkmenntaskólann Arhus Tech í Árósum.

Íslendingurinn Dagný Björk Örlygsdóttir sigraði árlega keppni verk- og iðnnema í kjötiðn í Danmörku. Keppninni lauk í gærkvöld en hún var haldin í Óðinsvéum á Fjóni. Alls voru tíu kjötiðnaðarnemar sem kepptu í úrslitum.

Keppnin fór þannig fram að keppt var bæði í kjötskurði, kjötvinnslu og framsetningu varanna. Í verðlaun fékk Dagný Björk, auk titilsins Danmerkurmeistarinn 2011, rúmar 400 þúsund íslenskar krónur en auk þess mun hún keppa fyrir hönd Danmerkur í alþjóðlegum keppnum í kjötiðn á árinu.

Dagný nemur kjötiðn við verkmenntaskólann Arhus Tech í Árósum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×