Mótmæli í París til stuðnings níumenningunum Valur Grettisson skrifar 15. janúar 2011 21:00 Mótmæli í París. Myndin er tekin af heimasíðu níumenningana. Myndin er breytt af forráðamönnum síðunnar. Mynd / rvk9.org
Mótmælendur sýndu níumenningunum svokölluðu stuðning fyrir utan íslenska sendiráðið í París í dag. Samkvæmt stuðningssíðu níumenninganna, var stórum borða komið fyrir við inngang sendiráðsins. Á honum stóð: „Pólitískar ofsóknir á Íslandi - Samstaða með nímenningunum! (Reykjavík Nine)." Þá var frönskum upplýsingabæklingi um dómsmálið dreift til gangandi vegfarenda og fólks sem fór inn og út úr sendiráðinu. Skömmu eftir að mótmælin hófust kom franska lögreglan á vettvang. Þeir fóru inn í sendiráðið en komu stuttu síðar aftur út og kröfðu mótmælendur um skilríki. Í kjölfarið var kallað eftir liðsauka og komu fleiri lögreglubílar á svæðið. Stuttu seinna yfirgaf fólkið svæðið en hafði þá verið þar í rúma klukkustund. Mótmælin eru hluti af alþjóðlegu kalli mótmælenda þar sem grasrótahópar eru hvattir til þess að sýna samstöðu vegna dómsmálsins yfir níumenningunum sem hefst á þriðjudaginn. Níumenningarnir hafa meðal annars, eins og kunnugt er, verið ákærð fyrir árás á Alþingi. Frekari aðgerða eru boðaðar samkvæmt síðunni. Annað kvöld, sunnudaginn 16. janúar, verða tónleikar með hollenska trúbadornum Armand, í Den Bosch, í Hollandi. Í London hefur verið kallað eftir mótmælum við íslenska sendiráðið þar í borg, mánudaginn 17. janúar. Í Berlín fer svo fram upplýsingafundur um málið þann 18. janúar og hefur fólkið sem að honum stendur boðað fleiri atburði í kringum og eftir dómsmálið. Og í lok janúar, þann 31. nánar tiltekið, verða samstöðu- og styrktartónleikar í Polotti tökuhúsinu í Grenoble, Frakklandi. Vísir ræddi við utanríkisráðuneytið fyrir helgi og spurði hvort nokkur viðbúnaður væri vegna alþjóðlega samstöðuátaksins en fékk þau svör að svo væri ekki.Hægt er að nálgast stuðningssíðuna hér.
Mest lesið Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Erlent Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Ferðamenn í báðum bifreiðum Innlent Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Innlent Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Innlent Fleiri fréttir Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Sjá meira