Erlent

Hljóp 365 maraþon á einu ári

Stefaan Engels hljóp mar­aþon hvern dag í heilt ár.nordicphotos/afp
Stefaan Engels hljóp mar­aþon hvern dag í heilt ár.nordicphotos/afp

Belgíski hlauparinn Stefaan Engels setti í gær nýtt heimsmet þegar hann kom í mark í 365. maraþonhlaupinu sínu á einu ári. Hinn 49 ára gamli Engels, sem oft er kallaður Maraþonmaðurinn, hóf þetta mikla verkefni í Belgíu fyrir einu ári og hefur hlaupið eitt maraþon á dag síðan þá. Alls hefur hann því hlaupið um 15.000 kílómetra í sjö löndum.

Engels, sem fagnað áfanganum í Barcelona á Spáni í gær, hljóp hvert maraþon á fjórum klukkustundum að meðaltali. Eldra metið af þessu tagi átti hinn japanski Akinori Kusuda, sem hljóp 52 maraþon í röð árið 2009, þá 65 ára að aldri.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×