Innlent

Hálkuslys í nótt

Það var hált í nótt.
Það var hált í nótt.

Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, slasaðist þegar bíllinn rann út af Reykjanesbrautinni í hálku á móts við Sprengisand, um klukkan tíu í gærkvöldi, og fór nokkrar veltur.

Maðurinn var fluttur á Slysadeild. Þá voru þrír fluttir til skoðunar á slysadeild eftir að bíll rann í hálku út af veginum á Hellisheiði í nótt og valt heila veltu.

Engin meiddist alvarlega. Víða hefur verið hálka suðvesanlands í nótt, enda hefur gengið á með slydduéljum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×