Innlent

Lýst eftir eiganda skartgripa sem fundust á víðavangi

Afhending muna fer fram gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi.
Afhending muna fer fram gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi. Mynd: Lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda hlutanna á meðfylgjandi mynd en þeir fundust á víðavangi.

Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögreglustöðina á Krókhálsi í síma 444-1190 en nánari upplýsingar veitir Árni Pálsson rannsóknarlögreglumaður virka daga frá kl. 8-15.

Tekið skal fram að afhending muna fer fram gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×