Innlent

Eflaust ágætis æfing að brúa Múlakvísl

Óli Tynes skrifar
Verkfræðideildir margra herja Atlantshafsbandalagsins gætu brúað Múlakvísl á nokkrum mínútum og þætti líklega ágætis æfing að fá að gera það.

Samgöngur eru lífæð nútímaþjóðfélags og truflun á þeim er neyðarástand. Ekki síst þegar um er að ræða grundvallar samgönguæð sem tengir saman öll landshorn í einhverju landi. Það er nær óhugsandi að slíkt ástand geti varað í tvær eða þrjár vikur. Kannski er það líka óþarfi.

Herjum er fátt mikilvægara en að komast hratt yfir, þar á meðal yfir stórfljót. Til þess nota þeir færanlegar brýr og brúarhluta af ýmsum toga, svo sem brýr sem eru ofan á skriðdrekum og brýr ofan á trukkum. Hægt er að flytja þær heimsálfa á milli á skömmum tíma með stórum herflutningavélum, eins og hinni bandarísku Lockheed Calaxy C-5.

Á YouTube má sjá myndir af því þegar breskir hermenn lögðu árið 1963 flotbrú yfir Themsá á ótrúlega skömmum tíma. Fyrir tveim árum lagði svo verkfræðisveit bandaríska hersins brú yfir Missouri fljótið á 12 mínútum. Mikil áhersla er lögð á að tólin sem til þarf séu auðveld í flutningum hvort sem er með flugvélum eða skipum.

Allir herir öflugri NATO ríkja ráða yfir þessari tækni. Ekki mun hafa verið leitað eftir aðstoð erlendis frá vegna Múlakvíslar og er skýringin sú að þessi tækni henti ekki við að brúa íslensk jökulfljót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×