Innlent

Ók ölvaður inn í garð á Selfossi

Mynd/Pjetur
Fjölskylda í Engjahverfi á Selfossi vaknaði upp við mikla skruðninga í nótt og þegar að var gáð var bíll kominn alveg að útidyrunum. Hann hafði farið yfir grindverk og í gegnum limgerði uns hann nam staðar á tröppunum.

Í ljós kom að um borð var ölvaður ökumaður og var hann, ásamt heimilisfólkinu, á vettvangi þegar lögregla kom á staðinn. Hann var ómeiddur, en var vistaður í fangageymslu í nótt. Kranabíl þurfti til að fjarlægja bílinn, sem er nokkuð skemmdur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×