Erlent

Frakkar flytja herlið frá Afganistan

Frakkar ætla að fara að fordæmi Bandaríkjamanna og flytja herlið sitt á brott frá Afganistan.

Samkvæmt frétt um málið á CNN ætla Frakkar að fylgja svipaðri áæltun og Bandaríkjamenn og eiga allir hermenn þeirra verða horfnir á brott frá Afganistan árið 2013. Sem stendur eru tæplega 4.000 franskir hermenn í landinu.

CNN hefur eftir varnarmálaráðherra Frakka að áætlun þeirra um brottflutning hermannanna verði ekki gerð opinber þar sem slíkt gæti aðstoðað Talibana í baráttu þeirra gegn herliði NATO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×