Erlent

Tveir stórir jarðskjálfar vestur af Alaska

Tveir stórir jarðskjálftar upp á 7,2 og 7,4 á Richter, skóku Aleutian eyjar í Norður-Kyrrahafi, vestur af Alaska, um klukkan þrjú í nótt.

Upptök þeirra voru um 163 kílómetra austan við eyjuna Fox Island. Ekki hafa borist neinar tilkynningar um manntjón eða skemmdir á eyjunum, en þar búa níu þúsund manns.

Strax eftir skjálftana var gefin út flóðbylgjuviðvörun á svæðinu en hún hefur nú verið dregin til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×