Erlent

Hatursummæli ekki lögbrot

Geert Wilders
Geert Wilders
Hollenski stjórnmálamaðurinn Geert Wilders, leiðtogi Frelsisflokksins, var í gær úrskurðaður saklaus af hatursfullum ummælum og mismunun í ummælum sínum um íslam og múslima.

Niðurstaða réttarins var að þótt ummæli hins afar umdeilda Wilders væru vissulega til þess fallin að særa marga múslima væru þau engu að síður innan ramma laganna og ekki beintengd misrétti gegn múslimum í Hollandi.

Wilders fagnaði niðurstöðunni og sagði hana mikinn létti og sigur fyrir tjáningarfrelsi í landinu.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×