Erlent

Ofurölvi stal rútu

Ölvaður maður var handtekinn eftir að hafa tekið langferðabíl traustataki í norska bænum Haugasundi aðfaranótt miðvikudags. Viðkomandi kvaðst hafa verið á leið til bæjarins Sveio, sem er í tæpra 20 kílómetra fjarlægð, en hann komst einungis hálfa leið áður en hann festist í vegarkanti.

Þjófurinn, sem var próflaus, virðist hafa rambað upp í ólæstan vagn á rútustöð og fundið í honum lykla. Segir lögregla það mikla mildi að engin slys hafi orðið á fólki.- þj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×