Íslenski boltinn

Kristinn: Mín fyrsta þrenna

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég er bara virkilega sáttur, þrjú stig í hús og liðið allt að koma til,“ sagði Kristinn Steindórsson, leikmaður Breiðabliks, eftir sigurinn í kvöld. Kristinn skoraði  fyrstu þrennu sumarsins og í leiðinni öll mörk Blika.

„Við byrjuðum leikinn mjög svo sterkt og komumst strax í 2-0, en á þeim tíma vorum við með tögl á haldi á leiknum. Síðan skora Fylkismenn og við hleypum þeim allt of mikið inn í leikinn. Í síðari hálfleik missa Fylkismenn síðan menn af velli og eftir það var sigur okkar aldrei í hættu. Þetta var fyrsta þrennan mín á ferlinum og það gefur mér enn meira sjálfstraust upp á framhaldið að gera,“ sagði Kristinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×