Erlent

Kona verður ríkust í heimi

Hér má sjá Reinhart ásamt syni sínum, John.
Hér má sjá Reinhart ásamt syni sínum, John. Mynd/hancockprospecting.com.au
Gina Rinehart er nú þegar ríkasta manneskjan í Ástralíu, en bandaríski bankinn Citigroup metur nú sem svo að Rinehart sé á góðri leið með að taka fram úr ríkustu mönnum heims.

Eignir Rinehart, sem fyrir 20 árum erfði skuldsett námufyrirtæki eftir föður sinn, hafa tvöfaldast á einu ári, og eru nú metnar á 1.268 milljarða en þó um 7.000 milljarðar skilji hana enn frá ríkasta manni heims segir Citigroup að bilið muni brúað fyrr en seinna.

Samkvæmt útreikningum bankans munu þrjú ný kola- og járnverkefni sem Rinehart er nú að vinna að gera hana að ríkustu manneskju heims, enda eigi hún fyrirtækin sín öll ein, án hluthafa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×