Erlent

Sterkur skjálfti í Pakistan

Frá Pakistan.
Frá Pakistan. MYND/AP

Öflugur jarðskjálfti, sem mældist 7,2 á Richter skalanum, reið yfir Pakistan í gærkvöldi. Upptök skjálftans voru á óbyggðu svæði nærri afgönsku landamærunum og benda fyrstu fréttir til þess að skemmdir af völdum hans séu ekki miklar.

Þó fullyrða menn að skjálftinn hafi fundist um stærstan hluta Pakistans og jafnvel í Nýju Delhí á Indlandi, Í Dubai og í Katar. Sjötíu og þrjú þúsund manns létust í skjálfta sem var aðeins stærri árið 2005 en sá átti upptök sín á svipuðum slóðum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×