Fabiano vill fara frá Sevilla í sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. febrúar 2011 18:15 Nordic Photos / AFP
Framherjinn Luis Fabiano hefur í hyggju að fara frá spænska liðinu Sevilla í sumar en hann hefur verið orðaður við mörg stórlið í Evrópu á undanförnum misserum. Núverandi samningur Fabiano við Sevilla gildir til loka tímabilsins 2013 en hann segist tilbúinn fyrir aðra áskorun. „Við erum núna á miðju tímabili og því ef til vill ekki kjörið að ræða þessi mál núna en það er engu að síður alveg ljóst að ég er kominn á endastöð hjá Sevilla," sagði hann við brasilíska fjölmiðla. „Ég hef unnið marga titla og líka spilað í Meistaradeildinni. Ég hef upplifað margt skemmtilegt í knattspyrnunni síðustu ár en það varir ekki allt að eilífu." Fabiano fullyrðir að Sevilla hafi hafnað tilboðum frá nokkrum brasilískum liðum og að sú umræða hafi flækt málin. „Þessir orðrómar hafa gert síðustu mánuði erfiða en ég er engu að síður ánægður með mína frammistöðu inn á vellinum. Félög eins og Corinthians, Santos og Inter Porto Alegre vildu öll fá mig en Sevilla ákvað að hlusta ekki á nein tilboð." Fabiano dreymir enn um að vinna titla með brasilíska landsliðinu eftir vonbrigðin á HM í Suður-Afríku í sumar. „Ég vil hjálpa liðinu að vinna Copa America. Ég var óánægður eftir HM í sumar og nú vil ég vinna titil með Brasilíu."
Spænski boltinn Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Sektin hans Messi er leyndarmál Fótbolti Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Dagskráin í dag: Skagamenn geta stigið stórt skref í átt að Bónus-deildinni Sport „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Fleiri fréttir Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Sjá meira