Vonast til að skrifa undir samninga í dag Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 5. maí 2011 12:07 Vilhjálmur Egilsson.
Vonir standa til að hægt verði að skrifað verði undir nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í dag. Búið er að semja um öll veigamestu atriðin en verið er að ganga frá smærri málum. Vonir stóðu til að hægt væri að ganga frá nýjum kjarasamningum í gærkvöldi eða í nótt. Það tókst ekki en fundarhöld hófust aftur í morgunsárið. „Það er mest verið að vinna í skjalgerð, svo það verði engin mistök á lokametrunum. Við vonumst til að klára þetta í dag,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Nýju kjarasamningarnir fela það í sér að lægstu laun á almennum vinnumarkaði hækka strax í rúmar hundrað og áttatíu þúsund krónur. Þau eru nú rúmar hundrað og sextíu þúsund krónur. Samningarnir eru til þriggja ára og koma launahækkanir inn í nokkrum skrefum. Að samningstíma loknum verða lágmarkslaun um tvö hundruð og fjögur þúsund krónur. Þegar samningarnir taka gildi fá launamenn fimmtíu þúsund króna eingreiðslu. Atvinnurekendur segja nýju kjarasamningana dýra fyrir þá. „Til þess að þetta gangi upp verðum við að fara atvinnuleiðina, sem byggir á að við náum upp fjárfestingum í atvinnulífinu og sköpum störf,“ segir Vilhjálmur. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins spurði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra út í áhrif nýju kjarasamninganna í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Hann sagði mikilvægt að það tækist að skapa hagvöxt svo að launahækkanirnar brynnu ekki upp á báli verðbólgu. Forsætisráðherra fagnaði því að nýjir kjarasamningar væru að nást á almennum vinnumarkaði og sagði spá Hagstofunnar ekki gera ráð fyrir að verðbólga myndi aukast umfram spár um meira en 0,5% með nýjum kjarasamningum. Jóhanna sagði samningana velta á því að ná hagvextinum upp og að kaupmáttur náist upp auk þess sem lægstu laun hækki enn þá meira.
Mest lesið „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Innlent Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Innlent Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Erlent Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Innlent Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent Fleiri fréttir Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Sjá meira