Innlent

Strengur fór í sundur á Austurlandi

Vopnafjörður
Vopnafjörður
Bilun hefur komið upp í stofnneti Mílu á Austurlandi. Um er að ræða slit á streng milli Egilsstaða og Vopnafjarðar, nánar tiltekið um 24 kílómetra frá Vopnafirði og 55 kílómetra frá Egilsstöðum.

Viðgerðalið er á leið á staðinn, en aðstæður eru slæmar á svæðinu sökum vatnavaxta, segir í tilkynningu frá Mílu.

Sigurrós Jónsdóttir, deildarstjóri hjá Mílu, segir að ljósleiðarahringurinn hafi farið í sundur og hafi áhrif á fjarskiptakerfið á Austurlandi. Hægt gæti á nettengingu á svæðinu en þó verði ekki alveg netlaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×