Innlent

Þyrla sækir slasaðan hestamann

Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið að sækja mann sem féll af hestbaki í Bjarnarfirði nyðri, milli Skjaldbjarnarvíkur og Drangavíkur. Maðurinn var þar í hópi ferðafólks og hafði fararstjóri hópsins samband við Neyðarlínuna um kl. 19 í kvöld og óskaði eftir aðstoð þyrlunnar, talið er að maðurinn sé fótbrotinn.

TF-GNA var ásamt lögreglu í umferðareftirliti á norðanverðu landinu og hélt strax á staðinn. Áætlað er að þyrlan verði komin á slysstað um klukkan 19:45. Verður maðurinn fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×