Erlent

Kapteinn flugmóðurskips leystur frá störfum

Owen Honors kapteinn á bandaríska flugmóðurskipinu USS Enterprise hefur verið leystur frá störfum. Um er að ræða eina af æðstu stöðum innan bandaríska flotans.

Ástæðan fyrir því að Honors tapar stöðu sinni er myndband sem hann lét gera og sýnt var um borð í skipinu. Það þykir fullt af fordómum í garð samkynheigðra og klámi. Meðal annars er að finna myndskeið af tveimur nöktum kvennkyns sjóliðum um borð saman í sturtu á myndbandinu.

Í tilkynningu frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu segir að Honors hafi sýnt vítavert dómgreindarleysi með því að láta gera þetta myndband og síðan sýna það um borð í flugmóðurskipinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×