Erlent

Þingkonan flutt á endurhæfingarstöð

Fjölmargir komu saman fyrir utan spítalann þegar Giffords var ekið á brott.
Fjölmargir komu saman fyrir utan spítalann þegar Giffords var ekið á brott. Mynd/AP

Bandaríski þingmaðurinn, Gabrielle Giffords, var síðdegis flutt á endurhæfingarstöð í Houston í Texas. Tæpar tvær vikur eru frá því að hún var skotin í höfuðið af stuttu færi.

Sex létust í skotarásinni, þar á meðal níu ára gömul stúlka, þegar Jared Loughner gekk berserksgang í matvöruverslun í Tucson þann 8. janúar. Árásin beindist að þingkonunni sem hefur sýnt mikil batamerki undanfarna daga.

Fjölmargir komu saman fyrir utan spítalann þegar Giffords var ekið út á flugvöll þaðan sem flogið var með hana til Houston.

Mynd/AP







Fleiri fréttir

Sjá meira


×