Innlent

Fréttaskýring: Hvað vilja atvinnurekendur?

Ingimar Karl Helgason skrifar

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að ekki verði hvikað frá kröfu um „sátt í sjávarútvegsmálum" í yfirstandandi kjaraviðræðum.

Upp úr slitnaði í viðræðum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins á dögunum, um þriggja ára samning, með sameiginlegum launaviðmiðum. Þetta strandaði, segir ASÍ, á þessari kröfu Samtaka atvinnulífsins um kvótann.

Ríkisstjórnin hefur í hyggju að innkalla aflaheimildir og úthluta þeim að nýju á tveimur áratugum. Þetta segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og eru fleiri markmið nefnd. Nú er unnið að því að semja lagafrumvarp í sjávarútvegsráðuneytinu.

En hver er sú lausn sem Samtök atvinnulífsins tala um? Um hvað snýst málið?

Landssamband íslenskra útvegsmanna segist hafa lýst sig reiðubúið til vinna með stjórnvöldum að breytingum á lögum um stjórn fiskveiða samkvæmt svonefndri samningaleið. Breið samstaða hafi náðst um hana í endurskoðunarnefndinni sem skilaði 250 síðna skýrslu í haust.

Samningaleiðin byggi á því að í stað ótímabundinnar aflahlutdeildar verði gerðir samnigar milli ríkisins og útgerða um tímabundinn afnotarétt af aflahlutdeild. Forsenda LÍÚ sé sú að með því verði sköpuð víðtæk sátt um fiskveiðistjórnina og að ásættanleg niðurstaða náist um samningstíma, framlengingu samninga, hversu stórum hluta aflaheimilda verði ráðstafað framhjá aflahlutdeild og önnur atriði sem skipti máli - en ekki er nánar farið í það.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var spurður út í þessa kröfu atvinnurekenda eftir fund með samninganefnd ASÍ fyrr í vikunni. Þar var ásamt Ingimari Karli Helgasyni fyrir Stöð 2, Björn Malmquist fréttamaður Ríkisútvarpsins.










Tengdar fréttir

Fáir fá kvótann

Ætla má að aðeins um 70 einstaklingar ráði yfir 70 prósentum af heildarkvótanum á Íslandsmiðum. LÍÚ telur að útvegurinn þurfi að fá 100 milljarða afskrifaða til að geta gengið. Einungis þorskkvóti sem fyrirtæki þessa fólks fá úthlutað er yfir 165 milljarða króna virði.

Sjávarútvegurinn stærsti ásteitingarsteinninn

,,Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins gætu náð saman um flest, en ekki kröfu samtakanna í sjávarútvegsmálum," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Viðræðum ASÍ og SA hefur verið slitið, en Gylfi segir aðildarfélög geta samið til skemmri tíma meðan leyst verði úr öðrum málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×