Innlent

Fíkniefnaakstur algengari en ölvunarakstur á virkum dögum

Einn ökumaður var tekinn úr umferð í Reykjavík i nótt fyrir að aka undiR áhrifum fíkniefna, en fíkniefnaakstur virðist vera orðinn algengari á virkum dögum en ölvunarakstur.

Þannig var enginn tekin fyrir ölvunarakstur í nótt, og engin í fyrrinótt, þegar þrír voru teknir fyrir fíkniefnaakstur.

Fimm voru teknir fyrir samskonar brot um síðustu helgi, þannig að tíðni fíkniefnaaksturs virðist vera að jafnast yfir vikuna. Ölvunarakstur er hinsvegar algengari um helgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×