Innlent

Hljóp með stolnar matvörur í fangið á lögreglunni

Lögreglan á Selfossi gómaði fyrir tilviljun þjóf í gær þegar hún ætlaði að hafa afskipti af konu á bíl fyrir utan verslun Krónunnar, vegna gruns um fíkniefnaakstur.

Kom þá félagi hennar hlaupandi út úr Krónunni með fullt fangið af matvælum, sem hann hafði stolið, og var hann umsvifalaust gripinn.

Konan reyndist undir áhrifum fíkniefna og við húsleit heima hjá þeim á Eyrarbakka fannst þýfi úr innbrotum í að minnstakosti tvo sumarbústaði í Grímsnesi. Fólkinu var sleppt að yfirheryslum loknum í gærkvöldi, en mál þeirra fer áfram í kerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×