Innlent

Nokkrar Þrettándabrennur haldnar í dag

Síðbúnar Þrettándabrennur verða á höfuðborgarsvæðinu í dag. Sú fyrri við Ægisíðu klukkan fimm en þar verður jafnframt flugeldasýning sem hefst korter fyrir sex. Í Leirdal í Grafarholti hefst svo brenna klukkan hálf sex.

Lögreglan gaf leyfi fyrir þessum brennum í dag að höfðu samráði við Veðurstofu Íslands og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

Þá er fyrirhuguð brenna og flugeldasýning í Ásholtshverfi í Mosfellsbæ klukkan sex og á Selfossi hefst blysför klukkan átta frá Tryggvatorgi þaðan sem gengið verður að bálkesti á tjaldsvæðinu þar sem boðið verður upp á brennu og flugeldasýningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×