Erlent

Húgó litli gerir allt vitlaust í Venezúela

Hugo Chavez er víst allt annað en sáttur með nafna sinn.
Hugo Chavez er víst allt annað en sáttur með nafna sinn.

Yfirvöld í Venezúela hafa hvatt einkarekna sjónvarpsstöð til að hætta að sýna vinsæla sápuóperu frá nágrannaríkinu Kólombíu. Ástæðan er einföld, ein persónan í þættinum heitir Venesúlea og hún á hund sem heitir Húgó litli.

Húgó litli týnist í einum þættinum og þá segir systir hennar, sem heitir Kólombía, að best væri ef hann kæmi ekkert aftur í leitirnar.

Í ljósi þess að forseti Venezúela heitir einmitt Húgó Chavez finnst þarlendum yfirvöldum augljóst að þarna séu Kólombíumenn að móðga hinn ástkæra leiðtoga.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×